smúðingur

no.kk.
þykkur drykkur t.d. úr ávöxtum og skyri sem gerður er í blandara, orðið er myndað af enska orðinu smoothie og og íslenska orðinu búðingur
VN:F [1.8.1_1037]
Einkunn: +44
Fjöldi þumla: 72

6 pælingar

  1. Gulli segir:

    falleg aðlögun að íslensku hljóðkerfi og miklu hljómfegurra en orðskrípið smúþí

    UN:F [1.8.1_1037]
    Einkunn: +8
    Fjöldi þumla: 8
  2. Salvör segir:

    Smúðingur ég fattaði strax hvað það þýðir!
    Skemmtilegt orð, ég ætla að taka það upp.

    UN:F [1.8.1_1037]
    Einkunn: +2
    Fjöldi þumla: 2
  3. Sigga segir:

    ég vissi hvað það er ;D Miklu flottara að segja smúðingur, Smoothie er asnalegt orð.

    UN:F [1.8.1_1037]
    Einkunn: 0
    Fjöldi þumla: 0
  4. Sigrún segir:

    þetta er bara snilldarlausn – og svo augljos að þegar maður sér hana finnst manni hún alltaf hafa verið sú eina rökrétta

    UN:F [1.8.1_1037]
    Einkunn: 0
    Fjöldi þumla: 0
  5. Karen Ragnarsdóttir segir:

    Bara eitt.. smoothie = ávaxtablanda en boozt = ávaxtir + skyr,
    þannig að það er eiginlega ekki rétt að vera með skyr í skilgreiningunni:)

    UN:F [1.8.1_1037]
    Einkunn: +1
    Fjöldi þumla: 1
  6. Illugi segir:

    Sammála Karen. Smúðingur er ágætisnafn yfir smoothie sem samanstendur af ávöxtun sem settir eru í blandara yfirleitt með ávaxtarsafa og klökum. Hins vegar er boost ávextir settir í blandara með viðbættu próteini, jógúrt og/eða skyri.

    Er einhver með sniðuga hugmynd hvað hægt er að nota fyrir boost? “Hleðsla” finnst mér ágætisorð yfir “recovery boost” sem maður fær sér eftir ræktina. Eða bara “batabúst”.

    UN:F [1.8.1_1037]
    Einkunn: 0
    Fjöldi þumla: 0

Vantar uppá skýringuna?

Hvað merkir orðið smúðingur í þínum huga? Settu inn þína pælingu, nýja skýringu eða gerðu athugasemd hér að neðan. Þekkir þú hins vegar annað schnilldar orð skaltu smella hér!